Talað oftar við Sigurð en mömmu sína

Sigmundur Davíð segist ætla að einbeita sér að því að …
Sigmundur Davíð segist ætla að einbeita sér að því að vinna fyrir sitt kjördæmi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist hafa rætt meira við Sigurð Inga Jóhannsson, núverandi forsætisráðherra og formann flokksins, en móður sína síðastliðin átta ár.

Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

„Undanfarin átta ár hef ég talað töluvert meira við Sigurð Inga heldur en móður mína þannig að það er allt í lagi að það verði smá viðsnúningur á því í smá tíma,“ er haft eftir Sigmundi Davíð í frétt RÚV.

Hann sagðist ekki vilja rekja það hvernig samskiptum hans og Sigurðar hefði verið háttað eftir að hann laut í lægra haldi fyrir síðarnefnda á flokksþingi en þeir hygðust hittast þegar þeir væru í sama landshluta.

Spurður að því hvort hann væri í fýlu við formanninn, sagði Sigmundur:

Ég er bara búinn að svara þessu held ég nógu oft.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert