14 vilja byggja tæp 600 leiguheimili

Leiguheimilunum er ætlað er að slá á húsnæðisvanda tekjulægri einstaklinga …
Leiguheimilunum er ætlað er að slá á húsnæðisvanda tekjulægri einstaklinga og millitekjuhópa. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Fjórtán aðilar sóttu um stofnframlög úr ríkissjóði til byggingar eða kaupa á 571 íbúð, svonefndum Leiguheimilum sem ætlað er að slá á húsnæðisvanda tekjulægri einstaklinga og millitekjuhópa.  

Að því er fram kemur í fréttatilkynningu geta fyrstu Leiguheimilin farið í byggingu að lokinni úthlutun og er áætlað að fyrstu íbúarnir geti flutt inn strax næsta ári. Íbúðalánasjóður kannar nú hvar þörfin fyrir hagkvæmt leiguhúsnæði er mest, en sjóðurinn mun á næstu vikum úthluta allt að 1,5 milljörðum króna til verkefnisins.

Leiguheimili er valkostur sem m.a. byggir á danskri fyrirmynd og  var komið á með frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um almennar íbúðir. Leiguheimilin fela í sér „að félagasamtök, sveitarfélög og lögaðilar sem uppfylla ákveðin skilyrði fá stuðning hins opinbera til að standa að uppbyggingu leiguhúsnæðis.  Þar munu íbúar öðlast rétt til öruggrar langtímaleigu, en greiðslur verða að meðaltali 20-30% lægri en markaðsleiga er í dag,“ segir í tilkynningunni.

Í sumum tilfellum geti húsnæðiskostnaður leigjenda, að teknu tilliti til húsnæðisbóta, jafnvel orðið allt að helmingi lægri en nú er. Til að geta sótt um Leiguheimili þurfa tekjur heimilisfólks að vera undir skilgreindum tekju-og eignamörkum sem eru yfir meðaltekjum nokkurra hópa, s.s. ungs fólks, eldri borgara og fleiri hópa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert