4 tonn af búnaði og hágæða hráefni

Íslenska kokkalandsliðið sem keppir á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Þýskalandi.
Íslenska kokkalandsliðið sem keppir á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Þýskalandi.

Búið er að senda hátt í 4 tonn af búnaði til Þýskalands, þar sem kokkalandsliðið mun setja upp fullbúið eldhús fyrir Ólympíuleikana í matreiðslu. Liðið heldur utan á morgun en æfingar fyrir mótið hafa staðið yfir sl. 18 mánuði.

Mikið magn hráefnis hefur einnig verið sent út en kokkalandsliðið leggur mikla áherslu á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni.

Kokkalandsliðið er þannig skipað:

Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon faglegur framkvæmdastjóri, Bjarni Siguróli Jakobsson fyrirliði, Björn Bragi Bragason forseti KM/framkvæmdastjórn, Steinn Óskar Sigurðsson liðsstjóri, Jóhannes Steinn Jóhannsesson liðsstjóri, Fannar Vernharðsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn Ólafsson, Axel Clausen, Garðar Kári Garðarsson, Hrafnkell Sigríðarson, Atli Þór Erlendsson, Sigurður Ágústsson, Georg Arnar Halldórsson og María Shramko.

Ólympíuleikarnir, IKA Culinary Olympics, eru haldnir á fjögurra ára fresti.

„Þar mætast um 2.000 af færustu kokkum heimsins sem keppa sín á milli um gull-, silfur- og bronsverðlaun. Keppnin hefst 21. október og stendur til 26. október. Lið frá um 40 þjóðum keppa á leikunum. Kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum, annars vegar er keppt í köldu borði eða Culinary Art Table og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen,“ segir í tilkynningu frá landsliðinu.

„Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Í Culinary Art Table eru sýndir yfir 30 réttir sem tekur rúmlega tvo sólarhringa að útbúa. Dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert