Árekstur í Breiðholtinu

Árekstur varð í Breiðholtinu í kvöld.
Árekstur varð í Breiðholtinu í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Árekstur varð á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Jaðarsels í Breiðholtinu í Reykjavík á níunda tímanum í kvöld.

Sjúkraflutningamenn og lögregla eru á vettvangi en beita þurfti klippum til að ná einum úr bifreið. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu hlaut einn maður minni háttar meiðsli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert