Þriðjungur neitar þátttöku í verðkönnun

Skipt um dekk á Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns.
Skipt um dekk á Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns. mbl.is/Árni Sæberg

Um þriðjungur dekkjaverkstæða neitaði þátttöku í könnun verðlagseftirlits ASÍ þegar verð var kannað á dekkjaskiptum fyrr í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Þar eru nafngreind þau fyrirtæki sem neituðu þátttöku.

„Eftirfarandi aðilar voru ekki tilbúnir til þess að veita upplýsingar um verð á þeirri þjónustu sem þeir selja neytendum. N1, Dekkjahöllin, Nesdekk, Sólning, Barðinn, Klettur, Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Betra grip, Gúmmívinnustofan SP dekk, Bílkó, Kraftbílar og Hjólbarðaþjónusta Magnúsar,“ segir í tilkynningunni.

„Dæmi voru um að starfsmenn dekkjaverkstæðanna treystu sér ekki til að gefa upp verð, önnur verkstæði vísuðu starfsfólki verðlagseftirlitsins á dyr og brögð voru af því að þjónustuaðilar vísuðu verðtökufólki á annan stað, svo sem á skrifstofu viðkomandi fyrirtækis, til þess að fá uppgefið verð. Slíkt samræmist ekki þeim sjálfsagða rétti neytenda að fá skýrar og skilmerkilegar upplýsingar um verð vöru og þjónustu á sölustað og gengur alfarið gegn verklagsreglum verðlagseftirlitsins um framkvæmd verðkannana.“

Í tilkynningunni nafngreinir ASÍ einnig þá sem tóku vel á móti verðlagseftirlitinu og hvetur neytendur til að beina viðskiptum sínum til þeirra:

„Vöku, Hjólbarða og smurþjónustunni Klöpp, Bílastofunni, Max 1, Hjólbarðaverkstæði Heklu, Bílabúð Benna, VIP dekk og viðhaldi, Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, Dekkjahúsinu, Bíljöfri, Mótorstillingu, Bílaverkstæði Jóa, Titancar, Dekkjasölunni, Pústþjónustu BJB, Dekkverki, Kvikkfix, Bifreiðaverkstæði S.B., Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar, Fossdekki, X5, Dekkjasölu Akureyrar, Höldur og Bara snilld/Bón og púst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert