Bílvelta við Húsavík

mbl.is/Hjörtur

Karlmaður velti bifreið sinni í nágrenni Húsavíkur í kvöld og er talið að bíllinn hafi farið tvær til þrjár veltur. Atvikið átti sér stað á Kísilvegi við Norðausturveg. 

Tildrög slyssins eru óljós samkvæmt lögreglu og meiðslin voru ekki alvarleg. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús á Akureyri til aðhlynningar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert