Loka hluta Laugavegs yfir Airwaves

Laugavegur verður að hluta til lokaður á meðan Iceland Airwaves …
Laugavegur verður að hluta til lokaður á meðan Iceland Airwaves stendur yfir. Júlíus Sigurjónsson

Á fundi borgarráðs í dag var samþykkt tillaga um að gera hluta Laugavegs og Skólavörðustígs tímabundið að göngugötum á meðan Iceland Airwaves-hátíðin stendur yfir. Tillagan fer til endanlegrar staðfestingar borgarstjórnar á fundi hennar 1. nóvember.

Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin verður haldin 2.-6. nóvember næstkomandi en á hátíðina koma um sex þúsund erlendir gestir. Á sama tíma verður töluvert af „off-venue“ tónleikum eða hliðarviðburðum út um alla borg. Hliðarviðburðirnir eru opnir fyrir alla og því má gera ráð fyrir mun fleiri gestum á hátíðina en þeim níu þúsund sem hafa keypt miða. 

Samkvæmt tillögunni verður hluta Laugavegs og Skólavörðustígs breytt í göngugötur á hátíðardögunum, frá miðvikudegi til sunnudags. Eftirtaldir hlutar gatnanna verða göngugötur; Laugavegur frá Vatnsstíg að gatnamótum Bankastrætis og Þingholtstrætis, og Skólavörðustígur frá gatnamótum Bergstaðastrætis að Bankastræti.

Nánari upplýsingar um lokanir má finna á vef Reykjavíkurborgar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert