Eiríkur Fannar Traustason, sem fyrr á þessu ári var sakfelldur fyrir að hafa nauðgað 17 ára gamalli franskri stúlku í Hrísey í fyrrasumar, er grunaður um aðra nauðgun í eyjunni sama sumar. Frá þessu er greint á fréttavef Ríkisútvarpsins.
Eiríkur gengur nú laus án eftirlits vegna veikinda í fjölskyldu hans. Hitt fórnarlambið er 14 ára stúlka og er málið á borði héraðssaksóknara. Hann nauðgaði frönsku stúlkunni í tjaldi en hún var ein á ferð um landið á reiðhjóli.