Búið að skipa formann samráðshóps

Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir hefur verið skipaður formaður samráðshóps um endurskoðun …
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir hefur verið skipaður formaður samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga. mbl.is/Sigurður Bogi

Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri hefur verið skipaður formaður samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga.

Í nýsamþykktum búvörulögum er kveðið á um að skipaður verði samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga. Í lögunum er jafnframt kveðið á um tryggja skuli aðkomu afurðastöðva, atvinnulífs, bænda, launþega og neytenda að endurskoðuninni og skal vinnu hópsins lokið eigi síðar en á árinu 2019.  

Skipa átti samráðshópinn fyrir 18. október en málið tafðist. Gunnar Bragi Sveinsson, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagði í samtali við mbl.is að málið hefði ekki gleymst. Ýmsar ástæður hefðu verið fyrir því að ekki tókst að klára það á tilsettum tíma.

Í samræmi við lögin hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra óskað eftir að eftirfarandi aðilar tilnefni fulltrúa í 7 manna samráðshóp, þ.e.  Alþýðusamband Íslands/BSRB, Bændasamtök Íslands (2 fulltrúar), Neytendasamtökin, Samtök afurðastöðva, Samtök atvinnulífsins.

Formaður samráðshópsins verður, eins og áður segir, Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri og er hún skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert