Ólafur Arnarson var kjörinn formaður Neytendasamtakanna á þingi samtakanna í Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni í dag.
Jóhannes Gunnarsson hafði gegnt formennsku undanfarin 26 ár en hann ákvað að gefa ekki kost á sér á ný.
Fimm voru í framboði til formanns en auk Ólafs voru það Árni Eðvaldsson húsasmíðameistari, Guðjón Sigurbjartsson viðskiptafræðingur, Pálmey Gísladóttir lyfjatæknir og Teitur Atlason, varaformaður samtakanna.