Kennslu aflýst vegna brunans

Lögreglu- og slökkviliðsmenn að störfum á við Háskóla Íslands í …
Lögreglu- og slökkviliðsmenn að störfum á við Háskóla Íslands í nótt. mbl.is/Júlíus

Allri kennslu sem fara átti fram í VR-1, einni byggingu raunvísindadeildar Háskóla Íslands, hefur verið aflýst á morgun vegna eldsvoða sem þar varð í nótt.

Fulltrúar deildarinnar munu þá meta stöðuna og senda út frekari tilkynningar.

Frétt mbl.is: Sprengingar og eldur í tilraunastofu

Í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands segir að öryggisfyrirtæki skólans hafi tilkynnti um brunann til starfsmanna Háskólans og slökkviliðs á fimmta tímanum í morgun. Slökkvilið var komið á staðinn örskömmu síðar og náði mjög fljótt tökum á eldinum sem var í rými á annarri hæð hússins. Í húsinu, sem var mannlaust þegar eldurinn kom upp,  fer m.a. fram kennsla í efnafræði. Eldfim og hættuleg efni eru í sérútbúnum efnageymslum í húsinu þar sem fylgt er mjög ströngum öryggiskröfum.

Klukkan sjö í morgun var slökkvistarfi lokið og búið að reykræsta en byggingin er vöktuð til að fylgjast með því hvort eldur kunni að koma upp að nýju.

Fulltrúar tryggingafélags hafa komið á staðinn til að leggja mat á tjón vegna brunans.

Lögregla hefur lokað aðgangi að svæði þar sem eldurinn kom upp, vegna rannsóknar á upptökum hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert