Með 13 rétta í getraunum

Tipparinn vann 15,5 milljónir.
Tipparinn vann 15,5 milljónir. mbl.is/Golli

Einn sérlega glúrinn íslenskur tippari var með 13 rétta í getraunum í gær, laugardag. Tipparinn tippaði á enska getraunaseðilinn fyrir 5.684 krónur og skiluðu þær honum 13 réttum og um 15,5 milljónum króna í vasann.

Í frétt frá Íslenskum getraunum segir að tipparinn hafi keypt miðann á föstudag á vef Íslenskra getrauna. Tipparinn er stuðningsmaður Víkings í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert