Ekið á gangandi vegfaranda

mbl.is/Þórður

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl í Keflavík snemma á laugardagsmorgun. Konan var komin út á götu er hún varð fyrir bifreiðinni. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem í ljós kom að hún hafði axlarbrotnað við slysið. Dimmt var, rigning og skyggni slæmt þegar atvikið átti sér stað.

Þá rákust tvær bifreiðir saman við Sporthúsið í Keflavík. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar kenndi eymsla og var fluttur á HSS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert