Kom að sofandi manni

Starfsmaður Læknamiðstöðvarinnar í Glæsibæ kom að sofandi manni í byggingunni er hann mætti til vinnu í morgun. Maðurinn hafði brotist inn. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar var hann í annarlegu ástandi og gistir nú fangageymslur. Hann verður yfirheyrður er líður á daginn. 

Reiðhjólamaður slasaðist í austurbæ Kópavogs snemma í morgun er hann féll af hjóli sínu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafði ökumaður bíls ekki virt gangbrautarrétt og urðu afleiðingarnar þessar. Meiðsl hans eru talin minniháttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert