Nokkrir bílar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hafa verið sendir á Nesjavallaveg eða í nágrenni hans vegna tilkynningar um að tíu til tuttugu bílar sitji þar fastir.
Ný og uppfærð frétt um málið: Landsbjörg fann enga fasta bíla
Samkvæmt upplýsingum Landsbjargar voru erlendir ferðamenn í bílunum. Þeir höfðu yfirgefið þá og voru á gangi.
Að sögn Jónasar Guðmundssonar, verkefnastjóra hjá Landsbjörg, eru það ekki góð tíðindi ef fólk er á gangi í leiðinlegu veðri eins og núna er á svæðinu.
Hann sagði ekki ljóst hvort bílarnir væru fastir á Nesjavallavegi eða Grafningsvegi.
Björgunarsveitarmennirnir eru á leiðinni á staðinn til þess að aðstoða fólkið. Lögreglan hefur ekki verið send á vettvang.