Ökumaður slapp ómeiddur er hann velti bifreið sinni á gatnamótum Kinnar og Útkinnar, skammt frá brúnni yfir Skjálfandafljót.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík var ísing á veginum þegar óhappið varð í morgun skammt frá Ófeigsstöðum. Bifreiðin er töluvert skemmd eftir veltuna.