Fyrsta skóflustungan í Hlaðgerðarkoti

Haraldur Sverrisson og Vörður Leví Traustason tóku skóflustunguna.
Haraldur Sverrisson og Vörður Leví Traustason tóku skóflustunguna. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta skóflustunga að nýbyggingu í Hlaðgerðarkoti, meðferðarheimili Samhjálpar, var tekin í dag.

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Haraldur Sverrisson, og Vörður Leví Traustason, framkvæmdastjóri Samhjálpar, tóku skóflustunguna. 

Nú er tæpt ár liðið frá því að Samhjálp og 365 ehf. héldu landssöfnun á Stöð 2 fyrir þessu verki. Þá söfnuðust um 85 milljónir í gjöfum og loforðum.

Arkitekt nýja hússins er Guðmundur Gunnlaugsson hjá Archus arkitektum. Verkfræðiteikningar eru í höndum Benjamíns Inga Guðmundssonar, verkfræðings hjá VSB verkfræðistofu, og um lóðarhönnun sér Gísli Rafn Guðmundsson borgarhönnuður. Allir þessir aðilar gefa vinnu sína og hönnun, samkvæmt tilkynningu.

Ljósmynd/Aðsend

Samið hefur verið við BM-Vallá um forsteyptar einingar frá Smell-inn og verður húsið reist í nóvember eða desember. Áætlað er að loka húsinu um eða upp úr næstu áramótum. Nýja húsið, sem er fyrsti áfangi af þremur, verður 170 m2 að stærð og tengir tvö núverandi hús saman.

Ístak sér um framkvæmdir að nýja húsinu.

Samhjálp færir öllum sem lagt hafa þessu góða málefni lið kærar þakkir.

„Þetta hefði ekki verið mögulegt án aðkomu einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og sveitarfélaga sem gáfu í landssöfnunina sem fór fram þann 21. nóvember  2015 á Stöð 2,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert