Kringlan afhenti fjórar milljónir

Frá afhendingu söfnunarfésins.
Frá afhendingu söfnunarfésins. Ljósmynd/Aðsend

Kringlan afhenti í dag söfnunarfé góðgerðaverkefnisins „Af öllu hjarta“ til Bleiku slaufunnar en alls söfnuðust 4.029.357 krónur.

„Af öllu hjarta“ er nýtt verkefni sem Kringlan hleypti af stokkunum í september síðastliðinn en í því felst að einn dag á ári gefa verslanir og veitingastaðir Kringlunnar 5% af veltu dagsins til góðs málefnis.

Söfnunin í ár fór fram fimmtudaginn 29. september en auk þess sem safnaðist hjá verslunum málaði listamaðurinn Tolli málverk með ungum leikskólabörnum og var verkið selt til styrktar málefninu, að því er kemur fram í tilkynningu.

Ennfremur var opnuð bleik verslun í göngugötu sem var starfrækt í tvær vikur. Þar voru til sölu bleikar vörur frá ýmsum verslunum Kringlunnar en allur ágóði af sölu þeirra rann einnig til málefnisins.

Tolli ásamt leikskólabörnum.
Tolli ásamt leikskólabörnum. Ljósmynd/Aðsend

Viðstaddir athöfn voru forsvarsaðilar Krabbameinsfélagsins, Rekstrarfélags Kringlunnar, kaupmenn auk þess sem myndlistarmaðurinn Tolli ásamt leikskólabörnum afhenti málverk til nýs eiganda. Það var fasteignafélagið Reitir sem keypti málverkið og studdi með þeim hætti við söfnun Kringlunnar, samkvæmt tilkynningunni.

Góðgerðardagur Kringlunnar, þegar verslanir og veitingastaðir hússins gefa 5% af veltu dagsins til góðs málefnis, verður árlegur héðan í frá og munu góðgerðasamtök geta sótt um útnefningu söfnunar með því að senda inn umsókn til Kringlunnar á kringlan.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert