Ólöf Nordal sendir baráttukveðjur

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra.
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það óvenjulega stöðu að leiða lista í kosningum en þurfa að fylgjast með gangi mála utan hringiðunnar.

Í bréfi sem hún sendi flokksfélögum sínum kveðst hún sakna þess að taka beinan þátt í kosningabaráttunni. Einnig segir hún ekki laust við að með þessu öðlist hún annað sjónarhorn á baráttuna.

„Á laugardag þurfa menn að velja milli óljósrar málefnastefnu á vinstri vængnum að forskrift Pírata eða áframhaldandi traustrar stefnu undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Það er alltaf þannig að flokkar þurfa að sækja fyrst umboð sitt til kjósenda áður en þeir taka sér völd á leynilegum stjórnarmyndunarfundum,“ skrifar Ólöf.

Fyrr í þessum mánuði var Ólöf, sem er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, lögð inn á sjúkrahús vegna lungnabólgu og sýkingar. Á Facebook-síðu sinni greindi hún frá því að hún þyrfti að fara sér hægt næstu daga og vikur.

Frétt mbl.is: Ólöf færir sig á hliðarlínuna

Þakkar góðar kveðjur

Síðar í bréfinu þakkar hún fyrir þær góðu kveðjur sem hún hefur fengið í veikindum sínum. „Eins og fram hefur komið hef ég því miður ekki getað beitt mér eins og ég hefði viljað í þessari kosningabaráttu vegna alvarlegrar sýkingar sem hefur herjað á mig. Ég vil nota tækifærið og þakka innilega fyrir allar góðu kveðjurnar sem mér hafa borist frá ykkur. Þær hafa veitt mér mikinn styrk og hlýju.“

Hér má lesa bréfið í heild sinni:

Ágætu félagar

Það er óvenjuleg staða að leiða lista í kosningum en þurfa að fylgjast með gangi mála utan hringiðunnar. Fyrir utan hvað ég sakna þess að taka ekki beinan þátt í baráttunni með félögum mínum í Reykjavík og hitta fólk víðs vegar af á landinu, er ekki laust við að maður öðlist annað sjónarhorn á baráttuna svona utan frá.

Stjórnmálin eru margbrotnari en nokkur sinni fyrr. Atburðarrás síðustu daga hefur skerpt verulega á línum. Á laugardag þurfa menn að velja milli óljósrar málefnastefnu á vinstri vængnum að forskrift Pírata eða áframhaldandi traustrar stefnu undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Það er alltaf þannig að flokkar þurfa að sækja fyrst umboð sitt til kjósenda áður en þeir taka sér völd á leynilegum stjórnarmyndunarfundum.

Höfum það hugfast að árangur og velferð eru ekki sjálfkrafa í áskrift; sá viðsnúningur sem orðið hefur í efnahagsmálum á kjörtímabilinu, fjölskyldum og öllum  til hagsbóta, er tilkominn vegna skýrrar stefnu og ábyrgrar stjórnunar. Það er af þeim ástæðum sem við gátum hafið endurreisn heilbrigðis- og velferðarkerfisins.

Tækifæri dagsins í dag eru dásamlega fjölbreytileg. Það er þó ekki okkar stjórnmálamanna að úthluta þeim eða skammta. Við berum ábyrgð á að grunnstoðirnar séu stöðugar svo að þjóðin — hvert og eitt okkar — geti nýtt þær sem stökkpall eða undir öryggisnet. Þar eru menntun, heilbrigðis- og velferðarmál efst í forgangi.

Að mennta börnin okkar og fróðleiksfúsa á öllum aldri í færni sem nýir tímar boða á að stýra þróun kennslumála. Það er ekki bara svo að við verðum að undirbúa og aðlaga námsmenn að breyttum tímum, kennarar og starfsfólk verða einnig að fylgja breytingum. Tækni á aldrei að trompa menntun. Við verðum að að mæta þörfum atvinnumarkaðarins með því að brúa bil menntunar og atvinnuþróunar. Til þess þarf aðgengi að námi með styrkjum fyrir þá sem það þurfa.

Við þurfum að nýta okkur vel þekkinguna því hún deyr aldrei. Þekkingin hefur einnig það umfram ýmsar náttúruauðlindir að hún vex og verður verðmætari eftir því sem hún er meira notuð og fleiri deila henni. Það þarf að styðja við tækni og nýsköpun, að sá og vökva jarðveginn svo upp spretti hugmyndir sem verða af tækifærum, fyrirtækjum og ævintýrum sem ekkert okkar óraði fyrir. Á sama tíma skulum við hlúa að grunnatvinnuvegum okkar, bæði þeim hefðbundnari og nýrri og hætta að stilla þeim sem sem andstæðum.

Þrjú ár í stjórn er skammur tími en engu síður hefur ótal mikilvægum málum verið siglt í höfn þ.á.m. stórfellt lækkun skulda ríkissjóðs, millidómsstigi komið á, skattar einfaldaðir og öldruðum tryggðar kjarabætur auk afnáms hafta og vörugjalda. Staðan er allt önnur en árið sem við settumst í stjórn, staða heimilanna er betri því bæði hefur eignastaða og kaupmáttur vænkast verulega. Við höfum uppskorið erfiði og aðhaldssemi síðustu ára.

Nú stöndum við á traustum grunni og þá er mikilvægt að rétt sé á málum haldið svo hagsæld haldi. Við viljum ná enn betri árangri sem tryggir að Ísland verði áfram í fremstu röð þjóða í lífskjörum og lífsgæðum. Það eru því næg verkefni framundan og engin ástæða að fara í samkeppni um loforðaflaum. Árangur núverandi kjörtímabils er lagður fram og óskum við eftir endurnýjuðu umboði kjósenda til áframhaldandi góðra verka.

Það er skammt til kosninga og mikilvægt að við stöndum saman, tölum við okkar fólk og hvetjum það til að kjósa — og tryggja Sjálfstæðisflokknum góða kosningu. Valið er skýrt, það stendur á milli upplausnar vinstristjórnar eða styrkrar forystu Sjálfstæðisflokks.

Eins og fram hefur komið hef ég því miður ekki getað beitt mér eins og ég hefði viljað í þessari kosningabaráttu vegna alvarlegrar sýkingar sem hefur herjað á mig. Ég vil nota tækifærið og þakka innilega fyrir allar góðu kveðjurnar sem mér hafa borist frá ykkur. Þær hafa veitt mér mikinn styrk og hlýju.

Að lokum sendi ég ykkur mínar bestu baráttukveðjur og hvatningu til að standa saman þessa síðustu daga. Okkar góðu verk á kjörtímabilinu tala sínu máli og ég trúi því að við eigum helling inni!

Ólöf Nordal

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert