Einn farþega enn á gjörgæslu

Farþegi sem slasaðist er rútan valt fluttur á börum í …
Farþegi sem slasaðist er rútan valt fluttur á börum í átt að sjúkrabíl. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Einn farþega rútunnar sem fór út af Þingvallavegi í fyrradag er enn á gjörgæsludeild. Þetta staðfestir Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Landspítalans. Ekki fengust upplýsingar um ástand annarra farþega, en fram kom í frétt mbl.is í gær að sex væru enn á almennum deildum.

Frétt mbl.is: Einn áfram á gjörgæslu

Landspítalinn lýsti yfir neyðarástandi á þriðjudag vegna rútuslyss á Þingvallavegi. Fjörutíu og tveir voru í rútunni, þar af voru sautján fluttir á bráðamóttöku en aðrir farþegar voru fluttir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Mosfellsbæ.

Tildrög slyssins verða könnuð af rannsóknarnefnd samgönguslysa en fram hefur komið í fréttum að él hafi verið á veginum og rútan ekki á negldum dekkjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert