Aðgerðir gegn skattaundanskotum

Fjármálaráðuneyti Íslands.
Fjármálaráðuneyti Íslands. mbl.is/Þórður

Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum voru meðal annars þrjár af aðgerðum BEPS, aðgerðaráætlunar OECD og G20 ríkjanna, innleiddar sem breytingar við tekjuskattslögin.

Hlutverk áætlunarinnar er að veita aðildarríkjum OECD og öðrum ríkjum leiðbeiningar um aðferðir við að stemma stigu við skattflótta á milli ríkja með samræmdum hætti, að því er kemur fram í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar

Þar segir að lögin séu mikilvægur þáttur í aðgerðaráætlun íslenskra stjórnvalda gegn meintum skattaundanskotum og notkun skattaskjóla. Einnig er lagasetningin í samræmi við þær alþjóðlegu skuldbindingar og samstarf sem Ísland hefur tekið virkan þátt í á undanförnum árum í baráttunni gegn skattsvikum.

„Meðal framangreindra breytinga er lögfesting reglna um þunna eiginfjármögnun, sem mikið hafa verið í umræðunni að undanförnu. Um er að ræða sérstakar reglur um takmörkun á skattalegum vaxtafrádrætti aðila í atvinnurekstri þegar lánveitandi er tengdur aðili, t.d. móðurfyrirtæki. Í reglunum felst að frádráttur vaxtagjalda og affalla vegna slíkra lánsviðskipta er takmarkaður við 30% af EBITDA-hagnaði skattaðilans,“ segir í tilkynningunni.

Eftirtaldar undantekningar eru þó frá umræddri reglu. Aðeins ein þarf að vera uppfyllt:

  • Vaxtagjöld eða afföll skattaðila eru lægri en 100 millj. kr.
  • Lánveitandi ber ótakmarkaða skattskyldu hérlendis
  • Skattaðili sýnir fram á að eiginfjárhlutfall hans sé eigi lægra en tveimur prósentustigum undir eiginfjárhlutfalli þeirrar samstæðu sem hann tilheyrir; eða
  • Skattaðili er fjármálafyrirtæki, vátryggingafélag eða félag í eigu þessara aðila sem starfar í sambærilegum rekstri.
Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið. mbl.is/Ernir

Skilgreining á fastri starfsstöð

„Í umræddum lögum er einnig að finna nákvæmari skilgreiningu á því hvað telst vera föst starfsstöð skattaðila sem ber takmarkaða skattskyldu hér á landi. Hér er fyrst og fremst verið að skerpa á leikreglunum hvað túlkun varðar á eldra ákvæði tekjuskattslaga þar sem margir hafa ekki talið það vera nægjanlega skýrt. Samkvæmt skilgreiningunni merkir föst starfstöð fasta atvinnustöð þar sem starfsemi fyrirtækis fer fram að nokkru eða öllu leyti," kemur fram í tilkynningunni.

Þar er einnig greint frá því að undantekningar frá meginreglunni og frekari skýringar sé að finna í ákvæðinu. „Skilgreiningin er í samræmi við 5. gr. samningsfyrirmyndar OECD um tvísköttunarsamninga frá árinu 2014 sem Ísland hefur samþykkt, sbr. einnig 7. lið aðgerðaráætlunar OECD og G20. Ráðherra mun setja reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins,“ segir í tilkynningunni.

Þurfa að skila ríki-fyrir-ríki-skýrslu

„Þá var með lögunum einnig lögfest ákvæði þar sem móðurfélagi, sem skráð er hérlendis og á félag/félög erlendis, er skylt að skila til ríkisskattstjóra svokallaðri ríki-fyrir-ríki skýrslu. Skýrslan skal innihalda upplýsingar um dreifingu tekna og greidda skatta hinnar alþjóðlegu fyrirtækjasamsteypu ásamt upplýsingum um hvernig efnahagsleg starfsemi samsteypunnar dreifist. Lögfestingin er í samræmi við samkomulag á vegum OECD og ríkja um aukið gagnsæi í starfsemi alþjóðlegra fyrirtækjasamsteypa en Ísland varð formlegur aðili að því samkomulagi með undirritun þess 12. maí sl. Með ákvæðinu er aðildarríkjum innan OECD heimilað að skiptast á ríki-fyrir-ríki skýrslum sín á milli, bæði sjálfvirkt og með tvíhliða samningum. Samkomulagið er hluti af 13. lið aðgerðaráætlunar OECD og G20 í tengslum við endurskoðun á milliverðlagningarreglum. Ráðherra setur síðan reglugerð um nánari framkvæmd á ákvæðinu," kemur fram í tilkynningunni. 

Ofangreind ákvæði taka öll gildi í byrjun næsta árs og gilda því um rekstrarárið 2017. Áhrif þeirra, ef einhver eru, ættu því að koma fram í ársreikningi skattaðila og skattskilum sem liggja fyrst fyrir á árinu 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert