Af gjörgæslu eftir umferðarslys

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Konan sem var flutt á gjörgæsludeild Landspítalans eftir alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut 17. október, hefur verið útskrifuð þaðan.  

Karlmaður sem einnig lenti í slysinu var útskrifaður af gjörgæslu skömmu eftir að hann var fluttur á Landspítalann.

Frétt mbl.is: Einn útskrifaður af gjörgæslu

Slysið varð með þeim hætti að bifreið var ekið í veg fyrir lögreglu á bifhjóli sem var að fylgja sjúkrabíl í forgangsakstri, vegna áreksturs við flugstöð Leifs Eiríkssonar, á Reykjanesbraut í Hafnarfirði.

Einn lést í umferðarslysinu við Rósaselstorg, skammt frá flugstöðinni og tveir hlutu minniháttar áverka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert