Mótmæla rangfærslum auglýsinga Iceland Watch

Íslensk stjórnvöld mótmæla auglýsingum Iceland Watch, sem þau segja vega …
Íslensk stjórnvöld mótmæla auglýsingum Iceland Watch, sem þau segja vega að starfsheiðri tiltekinna starfsmanna Seðlabanka Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson

Íslensk stjórnvöld mótmæla rangfærslum sem birtast í auglýsingum Iceland Watch, sem þau segja vega með ósmekklegum hætti að starfsheiðri tiltekinna starfsmanna Seðlabanka Íslands og sem birtar séu af erlendum aðilum sem hafi hag af því að ráðstöfun um meðferð aflandskróna verði breytt.

Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ráðherranefnd um efnahagsmál hafi fundað í morgun með Má Guðmundssyni seðlabankastjóra, „vegna fordæmalausra auglýsinga Iceland Watch í fjölmiðlum undanfarna daga þar sem spjótum virðist beint að lögfestum ráðstöfunum á Íslandi um meðferð aflandskróna,“ að því er segir í tilkynningunni.

Þá segir að einstakir stærri aflandskrónueigendur hafi að undirförnu freistað þess að hafa áhrif á alþjóðlegar stofnanir, lánshæfismatsfyrirtæki og almenna fjölmiðlaumfjöllun en orðið lítið ágengt.

„Íslensk stjórnvöld hafa við undirbúning laga og framkvæmd áætlunar um afnám hafta í einu og öllu lagt áherslu á að tryggja jafnræði, verja stjórnarskrárvarin réttindi og virða alþjóðlegar skuldbindingar.

Lánshæfismatsfyrirtæki hafa hækkað eða staðfest mat á lánshæfi Íslands í kjölfar lagabreytinga um fjármagnhöftin og Eftirlitsstofnun EFTA hefur gefið út bráðabirgðaálit þess efnis að ekki sé tilefni til að gera athugasemdir við ráðstafanir íslenskra stjórnvalda varðandi  meðferð aflandskróna.

Tilgangur laga um meðferð krónueigna er að aðgreina aflandskrónueignir tryggilega svo mögulegt sé að stíga næstu skref í losun hafta og koma á frjálsum milliríkjaviðskiptum með krónur á ný án þess að fjármálastöðugleika eða stöðugleika í gengis- og peningamálum verði ógnað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert