Örmagnaðist á rjúpu

Laugarvatn
Laugarvatn mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni var síðdegis í dag kölluð út til aðstoðar rjúpnaskyttu sem hafði örmagnast og ofkælst á Miðdalsfjalli norðan Laugarvatns. Þegar hjálp barst var maðurinn bæði illa áttaður og með skerta meðvitund.

 Frétt mbl.is: Sækja rjúpnaskyttu á Miðdalsfjall

Vel gekk að flytja veiðimanninn niður af fjallinu þar sem farið var með hann í hús, hlúð að honum og hann færður í þurr og hlý flöt meðan beðið var sjúkrabíls sem flutti hann til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum frá Slysavaranafélaginu Landsbjörg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert