Dagur B.: Þingmenn grípi inn í úrskurð

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. mbl.is/Golli

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, hefur sent öllum þingmönnum bréf þar sem hann skorar á þá að grípa inn í úrskurð kjararáðs. Borgarstjóri segir m.a. í bréfinu að samstarf stjórnvalda og verkalýðshreyfingar um þróun kjaramála sé í fullkomnu uppnámi vegna úrskurðarins.

Bréfið hljóðar svona.

„Ágæti þingmaður.

Það hefði verið óskandi að geta með bréfi þessu látið nægja að óska þér til hamingju með kjörið og bera fram óskir um gott samstarf. Í ljósi úrskurðar kjararáðs um hækkun á launum þingmanna, ráðherra og forseta Íslands get ég þó ekki látið hjá líða en að skora á þig, nýtt Alþingi og ríkisstjórn að gera það að sínu fyrsta verki að grípa inn í þennan úrskurð.

Það að laun ráðamanna hækki langt umfram þær línur sem lagðar hafa verið varðandi kjaraþróun í landinu - í nafni stöðugleika, er bæði óréttlátt og rangt – og má ekki standa.

Ég vona að allir geri sér grein fyrir alvarleika málsins og hvað er í húfi. Í mínum huga er samstarf stjórnvalda og verkalýðshreyfingar um þróun kjaramála í fullkomnu uppnámi ef ekkert verður að gert. Þá er stöðugleiki úr sögunni og allir tapa. Það er augljóst mál.

 Að lokum vil ég ítreka hamingjuóskir með kjör þitt og sæti á Alþingi. Ég óska þér velfarnaðar og vonast eftir góðu samstarfi í þeim mikilvægu verkefnum sem framundan eru á nýhöfnu kjörtímabili.“

Þá hefur borgarstjóri farið þess á leit við skrifstofustjóra skrifstofu borgarstjórnar að laun kjörinna fulltrúa í borgarstjórn að honum meðtöldum hækki ekki í samræmi við úrskurðinn frá 1. nóvember, en grunnlaun borgarfulltrúa eru 80% af þingfararkaupi auk þess sem laun borgarstjóra miðast við laun forsætisráðherra samkvæmt ráðningarbréfi hans sem borgarstjórn samþykkir hverju sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert