Rjúpnaskytturnar fundnar

Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hafa komið að leitinni í dag.
Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hafa komið að leitinni í dag. mbl.is/Alfons

Rjúpnaskytturnar sem leitað hefur verið síðan í gærkvöldi fundust heilar á húfi rétt fyrir klukkan 14 í dag. Mennirnir höfðu leitað sér skjóls undan veðrinu ofarlega í hlíðum Gráborgar, ofan Hestdala sem ganga inn af Kolgrafafirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Mennirnir eru þokkalega á sig komnir, miðað við aðstæður, en bæði blautir og kaldir. Þeir gerðu björgunarsveitafólki vart við sig með því að blása reglulega í neyðarflautu sem þeir höfðu meðferðis. Eftir að hafa hlúð að mönnunum bíður björgunarsveitafólks það erfiða verkefni að koma þeim til byggða yfir torfarna leið í leiðinlegu veðri.

Alls komu rúmlega 200 manns, björgunarsveitafólk víða af landinu, að leitinni með einum eða öðrum hætti. Björgunarsveitafólk er nú á leið til byggða en gera má ráð fyrir að það taki nokkrar klukkustundir miðað við aðstæður á leitarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert