Lögreglan leitar að ökumanni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók bifreið í veg fyrir hjólreiðamann á Nýbýlavegi rétt við Dómínó's í Kópavogi um klukkan 18.30  miðvikudaginn 2. nóvember.

Lögreglu var tilkynnt um slysið og kom á vettvang en hjólreiðamaðurinn var fluttur á brott í sjúkrabíl. Ökumaðurinn, karlmaður á miðjum aldri, ræddi við hjólreiðamanninn á vettvangi en ók síðan á brott, að því er lögreglan segir í tilkynningu.

„Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi,“ segir lögregla ennfremur.

„Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000.

Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið thora.jonasdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert