Formlegar viðræður fyrir lok vikunnar

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður fyrir lok þessarar viku. Hann fundaði með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands í dag.

Þetta kemur fram á vefsíðu forsetaembættisins.

Bjarni  gerði Guðna grein fyrir stöðu mála á fundinum og greindi honum frá fyrirætlan sinni varðandi stjórnarmyndunarviðræðurnar.

Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið hjá forseta Íslands á miðviku­dag­inn í síðustu viku.

Viðreisn, Björt framtíð og Sjálf­stæðis­flokk­ur ræddu saman í gær. Þeir eru með 32 menn á þingi og því ekki nema um eins manns meiri­hluta að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert