Fögnuðu sex milljónasta farþeganum

Sex milljónasta farþega ársins var fagnað á Keflavíkurflugvelli í dag. Er þetta í fyrsta sinn sem farþegar ná þessum fjölda innan sama árs, að því er fram kemur í tilkynningu frá Isavia.

Í september á þessu ári var tekið á móti fimm milljónasta farþeganum og er þetta einnig í fyrsta sinn sem tveir svona fögnuðir eru haldnir innan sama ársins.

Það voru hjónin Jaqueline og Stephen Playford sem voru farþegar númer sex milljón og komu þau til landsins með Icelandair frá Gatwick-flugvelli í London. 

„Starfsfólk Isavia, Icelandair og Kynnisferða leysti hjónin út með blómum, skoðunarferðum um Ísland með Kynnisferðum, gjöf frá Cintamani og flugi á einhvern áfangastaða Icelandair. Þetta er í fyrsta sinn sem hjónin koma til Íslands og hugðust þau njóta náttúrunnar og vonuðust til að sjá norðurljósin. Þau voru að vonum hæstánægð með hinn óvænta glaðning,“ segir í tilkynningunni.

Frekari tækifæri til fagnaðar

Árið 2015 var fjöldi farþega í gegnum völlinn 4,85 milljónir, en nú í ár gerir Isavia ráð fyrir að um 6,8 milljónir farþega fari um flugvöllinn.

„Fjölgunin hefur verið mjög hröð undanfarin ár en í ár verður fjöldi farþega ríflega þrefalt meiri en hann var árið 2010, þegar hann náði rétt yfir tveimur milljónum. Á næsta ári gera spár Isavia einnig ráð fyrir tveimur fögnuðum innan sama árs, en gert er ráð fyrir að farþegafjöldi fari yfir átta milljónir og því tækifæri til að fagna bæði sjöundu og áttundu milljóninni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert