Arnarnesvegur opnaður á morgun

Unnið að Arnarnesvegi. Myndin var tekin í september sl.
Unnið að Arnarnesvegi. Myndin var tekin í september sl. mbl.is/Árni Sæberg

Arnarnesvegur, sem liggur milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar, verður tekinn í notkun kl. 13 á morgun. Verktakinn mun fjarlægja lokanir og hleypa umferð á veginn í fyrsta sinn.

Viðstaddir opnunina, sem er sögð óformleg í fréttatilkynningu Vegagerðarinnar, verða vegamálastjóri, bæjarstjóri Kópavogs og fulltrúar frá Kópavogsbæ og Garðabæ, fulltrúar verktakans og annarra sem komið hafa að verkinu.

„Verkið fólst í því að leggja nýjan 1,6 km langan veg frá mislægum vegamótum við Reykjanesbraut og austur fyrir Fífuhvammsveg. Að loknu útboði var samið við Suðurverk og Loftorku Reykjavík um verkið og hófust framkvæmdir í september 2015. Vegurinn mun létta á umferð um Fífuhvammsveg sem er þung á álagstímum.

Verklok voru áætluð 1. október 2016 en seinkaði af ýmsum ástæðum. Á vegkaflanum voru gerð þrenn gatnamót og tvenn undirgöng. Einnig var sett upp veglýsing, stígar gerðir, land mótað, hljóðvarnir settar upp og annað sem nauðsynlegt er til að ljúka verkinu,“ segir í tilkynningunni.

Ýmsum frágangi er enn ólokið en stefnt er að því að fullklára verkið 10. desember. Hafin er smíði göngubrúar yfir Arnarnesveg með gerð undirstaða á móts við Þorrasali og kirkjugarð, og verður þeirri framkvæmd lokið um mitt næsta ár.

Óafgreidd þingsályktunartillaga um samgönguáætlun 2015-2026 gerir ráð fyrir að Arnarnesvegur verði tengdur við Breiðholtsbraut á árunum 2023-2026.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert