Líkfundur við Grandagarð

Morgunblaðið/Sverrir

Maður fannst látinn í skurði við Grandagarð í morgun. Ekki er talið að dauða hans hafi borið að með saknæmum hætti heldur hafi verið um slys að ræða.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn og yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir líkfundinn við mbl.is en segir að ekki liggi ljóst fyrir á þessari stundu hver maðurinn er. Andlát mannsins er til rannsóknar hjá rannsóknarlögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert