Fjórir málefnahópar funda í dag

Forsvarsmenn flokkanna munu fara yfir stöðu mála að loknum fundum …
Forsvarsmenn flokkanna munu fara yfir stöðu mála að loknum fundum málefnahópanna. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Alls munu fjórir málefnahópar þeirra fimm flokka sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum hefja störf á nefndarsviði Alþingis í dag, einn til tveir frá hverjum flokki.

Líklegt má telja að flestir í málefnahópunum séu þingmenn.

Flokkarnir hafa undirbúið sig í morgun fyrir fundarhöldin og til að mynda hófst þingflokksfundur Vinstri grænna í morgun, samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra Vinstri grænna.

Forsvarsmenn flokkanna munu fara yfir það sem kemur fram á fundunum að þeim loknum. 

Ekki er ljóst hversu lengi málefnahóparnir munu funda í dag en Vinstri grænir sjá um að boða næstu fundi sem verða haldnir í framhaldinu.

Frétt mbl.is: Katrín ræddi við forsetann

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert