Þrjátíu kennarar segja upp störfum

Kennarar í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar undirskriftalisti var afhentur Degi B. …
Kennarar í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar undirskriftalisti var afhentur Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Eggert Jóhannesson

Tólf kennarar hafa sagt upp störfum í Norðlingaskóla í Reykjavík og átján hafa sagt upp í fjórum skólum af sex í Reykjanesbæ. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru uppsagnir í stærstu sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu einungis í Reykjavík auk þess að vera í Reykjanesbæ. 

Ragnar Þór Pétursson, kennari í Norðlingaskóla, er einn þeirra kennara sem sagt hefur upp störfum í Norðlingaskóla. „Það er ofboðslega stór hópur sem ætlar ekki í aðgerðir ef upp úr viðræðum slitnar. Menn ætla ekki í verkföll og ætla ekki í einn hring enn heldur finna sér eitthvað annað að gera,“ segir Ragnar.

Að lágmarki 60 kennarar sagt upp störfum 

Samkvæmt heimildum mbl.is höfðu 30 kennarar sagt upp störfum í Reykjavík í gær. Engar uppsagnir hafa borist til annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. 

Í heild hafa því að lágmarki 60 kennarar sagt upp störfum. Ekki liggja fyrir tölur annars staðar á landinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert