Ekki verið með hatursorðræðu

Jón Valur Jensson guðfræðingur.
Jón Valur Jensson guðfræðingur.

„Þetta er allsendis fráleit kæra og ekki minnsti fótur fyrir henni eins og kemur í ljós þegar ákæruatriðin verða skoðuð. Ég hef ekki verið með neina hatursorðræðu,“ segir Jón Valur Jensson guðfræðingur.

Hann hefur verið ákærður fyr­ir hat­ursorðræðu vegna þriggja færslna sem hann birti á jon­val­ur­jen­son.blog.is.

Frétt mbl.is: Jón Val­ur ákærður fyr­ir hat­ursorðræðu

Lög­reglu­stjór­inn á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur meðal annars ákært Jón Val fyr­ir eft­ir­far­andi um­mæli sem birt­ust á blogg­inu 21. apríl síðastliðinn:

„Fræðsla um fjöl­breyti­leika manns­ins“ á ekki að vera á hendi þeirra, sem hafa sína ein­hæfu, þröngu og skekktu sýn á kyn­ferðismál. Sam­tök­in 78 eru hags­muna­sam­tök, ekki hlut­lægt og hlut­laust fræðasam­fé­lag. Full­trú­ar þessa sam­taka hafa ekk­ert með það að gera að móta hug­ar­far barna, sem þeir eiga ekki […]

Kom á óvart

„Þetta kom mér á óvart. Ég hef ekki verið með nein gróf ummæli um þessa hinsegin fræðslu,“ segir Jón Valur. Í fyrrgreindum bloggfærslum ræðir hann um fræðslu Samtaka ‘78 í grunnskólum. 

Fjallað málefnalega um kynhneigð síðasta áratuginn 

Jón Valur bendir á að hann hafi gert sér far um að fjalla málefnalega um kynhneigðarmál undanfarin 10 ár. „Ekki síst út frá kirkjulegu sjónarmiði,“ segir hann.

Í þessu samhengi bendir hann á að þegar hann var í námi erlendis fyrir allnokkrum árum hafi hann orðið var við að í aðsigi hafi verið sókn að kirkjunum varðandi hjónavígslur samkynhneigðra innan kirkjunnar. Hann er sjálfur ekki hlynntur því að samkynja hjónaband sé vígt innan kirkjunnar. Þegar slíkt fari fram sé ekki „farið eftir því sem stendur í Nýja testamentinu sem bæði Jesús og Páll postuli segja þar um hjónabandið,“ segi Jón Valur.  

„Ég er kristinnar trúar. Ég tek því alvarlega sem Jesús segir að maður eigi að elska náungann eins og sjálfan sig,“ segir hann og ítrekar að hann hafi ekki verið með hatursorðræðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert