Fjórar bílveltur á Suðurlandi

Lögreglan á Suðurlandi hafði í nógu að snúast í dag.
Lögreglan á Suðurlandi hafði í nógu að snúast í dag. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Fjórar bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í dag. Erlendir ferðamenn voru í þremur bílanna sem ultu.

Fyrst varð bílvelta við Fjallsárlón um kl. 11.15. Erlendir ferðamenn voru í bílnum og hlutu þeir minni háttar meiðsli.

Laust fyrir klukkan 12 varð önnur bílvelta við afleggjarann að Hótel Rangá.  Íslendingur var þar á ferðinni og var hann fluttur á brott með sjúkrabifreið. Lögreglan veit ekki um meiðsli hans að svo stöddu.

Tilkynnt var um þriðju bílveltuna á Þingvallarvegi við Öxará klukkan 12.30. Ítalskur ferðamaður var í bílnum en hann slasaðist ekki.

Um fimm mínútum síðar var tilkynnt um bílveltu við Skaftafell. Erlendir ferðamenn voru í bílnum.

Tveir bílar skullu einnig saman á Hafnarbraut á Höfn í Hornafirði. Erlendir ferðamenn voru í öðrum bílnum.

Þá varð minni háttar umferðaróhapp þegar bíll lenti utan í vegriði í Kömbunum.

Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi skrifast flest umferðarslysin á slæma færð.

Ók á 125 km hraða

Þrír voru einnig teknir fyrir of hraðan akstur af lögreglunni á Suðurlandi í dag. Sá sem fór hægast ók á 116 km hraða á klukkustund en sá sem ók hraðast var á 125 km hraða á klukkustund. Allt voru þetta erlendir ferðamenn og voru þeir stöðvaðir í nágrenni við Vík í Mýrdal.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert