Tvær bílveltur í Ísafjarðardjúpi

Um tuttugu kílómetrar voru á milli slysstaðanna.
Um tuttugu kílómetrar voru á milli slysstaðanna.

Tvær bílveltur urðu í Ísafjarðardjúpi í gærkvöldi. Sú fyrri varð um sexleytið. Í bílnum voru tveir erlendir ferðamenn. Sú síðari varð á milli 21 og 22 en ein kona var í þeim bíl.

Að sögn lögreglunnar á Ísafirði urðu engin slys á fólki. Talið er að hvor bíllinn um sig hafi farið eina veltu. 

Um tuttugu kílómetrar voru á milli slysstaðanna tveggja en töluverð hálka var á veginum þegar slysin urðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert