Forseti fundar með forystufólki

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands mbl.is/Ófeigur

Forseti  Íslands Guðni Th. Jóhannesson hefur boðað forystufólk stjórnmálaflokka, sem eiga sæti á Alþingi, til funda á morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Forseti mun fyrst hitta formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson, kl. 10.00. Fundurinn verður á skrifstofu forseta að Staðastað, Sóleyjargötu 1.

Í kjölfarið fylgja fundir með öðru forystufólki og við það miðað að hver fundur vari um hálfa klukkustund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert