Sömdu um afhendingu á rafmagni

Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, Gestur G. Gestsson, …
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Haraldur Hallgrímsson, sölustjóri hjá Landsvirkjun. Ljósmynd/Aðsend

Landsvirkjun og Advania hafa undirritað samning um afhendingu á rafmagni til gagnavers Advania á Fitjum. Samningurinn gerir Advania kleift að halda áfram að tryggja vöxt gagnaversreksturs fyrirtækisins og hefst afhending samkvæmt samningi fyrir árslok 2016.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að orkan verði afhent úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar. „Landsvirkjun á og rekur 16 aflstöðvar, þar af 14 vatnsaflsstöðvar, tvær jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur. Sem stendur er Landsvirkjun að reisa nýja jarðvarmavirkjun á Þeistareykjum á Norðausturlandi og einnig standa yfir framkvæmdir við stækkun vatnsaflsvirkjunar við Búrfell á Suðurlandi,“ segir í yfirlýsingunni.

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Ljósmynd/Aðsend

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir það ánægjulegt að fá Advania í viðskiptavinahóp Landsvirkjunar. „Á Íslandi eru kjöraðstæður fyrir rekstur gagnavera og undanfarin ár hefur Landsvirkjun unnið að því að kynna Ísland sem ákjósanlegan stað fyrir gagnaver. Góður vöxtur Advania og annarra gagnaversfyrirtækja á Íslandi byggist á hagstæðum og öruggum orkusamningum til langs tíma, samkeppnishæfu umhverfi og samvinnu hagsmunaaðila í greininni hér á landi,“ segir hann.

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, segir umfang Advania á gagnaversmarkaði hafa vaxið mjög undanfarin ár og að stór verkefni séu í farvatninu. „Aðgengi að orku er einn mikilvægasti þátturinn í rekstri gagnavera og því er það okkur mikil ánægja að gera þennan samning við Landsvirkjun sem við teljum að styrki getu okkar til að þjónusta fleiri alþjóðlega viðskiptavini í framtíðinni,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert