Bíll fór út af við Vík

Vík í Mýrdal
Vík í Mýrdal mbl.is/Sigurður Bogi

Bíll fór út af Reynishverfisvegi við Vík í Mýrdal kl. þrjú. Tvennt slasaðist en meiðsli þeirra eru ekki talin alvarleg. Þyrla er lögð af stað til að ná í annan einstaklinginn vegna mögulegrar hættu á bakmeiðslum.  

Að sögn lögreglu liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um tildrög slyssins að svo stöddu. Lögreglan og sjúkraflutningamenn eru enn að störfum á vettvangi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert