„Eitthvað sem maður er búinn að æfa“

Flugvélin á veginum þar sem hún nauðlenti í Heiðmörk.
Flugvélin á veginum þar sem hún nauðlenti í Heiðmörk. mbl.is/Árni Sæberg.

Flugmaður neyddist til að nauðlenda lítilli flugvél í Heiðmörk nú rétt eftir hádegi. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er um að ræða litla vél sem náð hafi lendingu heilu og höldnu. Í samtali við mbl.is segir hann að lendingin hafi verið auðveld.

Lögreglan er nú mætt á lendingarstað vélarinnar. Flugmaðurinn var aðeins einn um borð, og náði að lenda vélinni á vegi.

Þarf 20-50 metra

Emil Ágústsson, flugmaður og eigandi vélarinnar, segir í samtali við mbl.is að gangtruflanir hafi neytt hann til að lenda henni.

Hvernig gekk þér að lenda?

„Það var fínt sko, ekkert mál,“ segir Emil. „Ég lenti bara á veginum, sem sést vel úr lofti.“

Hvað þarftu langa vegalengd til að lenda?

„Ég þarf ekki nema svona tuttugu til fimmtíu metra. Þetta er þannig vél.“

Þú hefur varla lent í þessu áður, að þurfa að nauðlenda?

„Nei, þetta er fyrsta skiptið. En þetta er eitthvað sem maður er búinn að æfa í gegnum tíðina.“

Sendi neyðarkall í flugturninn

Áður en Emil lenti vélinni náði hann að senda neyðarkall í flugturninn á Reykjavíkurflugvelli, samkvæmt upplýsingum frá Isavia.

„Um leið og neyðarkall berst þá fer í gang ákveðin viðbragðsáætlun, þar sem allir viðbragðsaðilar hafa aðkomu,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert