Ökumaður sem grunaðar er um ölvunarakstur endaði för sína upp á vegg í nágrenni fyrirtækisins Málningar við Dalveginn í Kópavogi í morgun.
Gegnumakstur er á þessum slóðum og aka margir bak við bensínstöð Orkunnar til að stytta sér leið af Dalveginum út á Reykjanesbrautina. Ökumaður þessa bíls villtist hins vegar eitthvað í myrkrinu klukkan hálfníu í morgun og endaði ökuferðina uppi á veggnum.
Verulegar skemmdir eru á bílnum, en ökumaðurinn sem var einn í bílnum, slapp ómeiddur. Hann sefur hins vegar núna úr sér í fangageymslum lögreglunnar, sem mun ræða við hann frekar þegar hann vaknar.