Sölubann á Stjörnublys

Á myndinni má sjá hvernig virkni umræddra stjörnuljósa var við …
Á myndinni má sjá hvernig virkni umræddra stjörnuljósa var við prófun. Ljósmynd/Neytendastofa

Neytendastofa hefur ákveðið að banna Slysavarnafélaginu Landsbjörg að selja og afhenda handblys, sem kallast Stjörnublys, sem félagið hefur verið með í sölu. 

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu. 

Þar segir að blysin hafi verið send í prófun á prófunarstofu á Spáni. Niðurstaða prófunarinnar var sú að sjö blys af tíu virkuðu ekki rétt þar sem að þau uppfylltu ekki kröfur um grunngerð skotelda. Þá segir, að Stjörnublysin séu í flokki 1 sem séu skoteldar sem lítil hætta á að stafa af en þar sem að þau virki ekki rétt geti hætta stafað af þeim. 

„Neytendastofa hefur því tekið ákvörðun um sölu- og afhendingarbann á Stjörnublys frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. Auk þess er krafist að félagið eyði öllum óseldum eintökum og sendi staðfestingu um að til Neytendastofu. Framangreind prófun og skoðun Neytendastofu er hluti af samevrópsku átaksverkefni um öryggi skotelda.“

Frétt mbl.is: Blysin komin í vörslu Gæslunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert