Umferð eykst í borginni

Í umferðinni í Reykjavík.
Í umferðinni í Reykjavík. mbl.is/Golli

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst um tæp níu prósent í nóvembermánuði og hefur ekki aukist svo mikið síðan árið 2007.

Stefnir í að umferðin árið 2016 verði um 7 prósent meiri en verið hefur og telst það mikil aukning, samkvæmt fréttatilkynningu frá Vegagerðinni.

Segir jafnframt að ef nóvembermánuðir þessa árs og ársins 2015 séu bornir saman megi greina 8,9 prósenta aukningu á þessu ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert