Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað karlmann á fimmtugsaldri í farbann. Þetta staðfestir lögreglan á Suðurnesjum.
Hann er grunaður um að hafa tekið myndir í óleyfi á Facebook-síðum ungra stúlkna og birt þær á eigin vefsíðu undir því skyni að þær væru falar til fylgdarþjónustu.
Lögreglan hafði óskað eftir því að maðurinn sæti áfram í gæsluvarðhaldi en ekki var orðið við því.
Upp komst um vefsíðuna í kjölfar umræðna á Facebook-hópnum Beauty Tips.
Frétt mbl.is: Stúlkurnar á bilinu 14 til 16 ára