Lögreglan varar við íbúðasvindli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við íbúðasvindli á netinu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við íbúðasvindli á netinu. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað við íbúðasvindli á netinu. Hún segir að besta vörnin sé að sýna alltaf smá tortryggni.

Í tilkynningu á Facebook-síðu sinni segir lögreglan að best sé að varast öll frávik í eðlilegum samskiptum varðandi leigu á húsnæði.

Ef íbúðin er erlendis er best að nota Google Maps til að skoða umhverfið og meta hvort húsnæðið sé rétt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert