Lækka verð á getraunaröðinni

Verðið á getraunaröðinni (1x2) þar sem tippað er á úrslit …
Verðið á getraunaröðinni (1x2) þar sem tippað er á úrslit fótboltaleikja, hefur verið lækkað vegna gengis sænsku krónunnar. AFP

Íslenskar getraunir hafa ákveðið að lækka verð á hverri röð í getraunum (1x2), úr 14 krónum í 13 krónur að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 

Lækkunin tekur gildi í dag, 5. desember og er gerð með samþykki innanríkisráðuneytisins. Ástæða lækkunarinnar er samstarf Íslenskra getrauna við Sænsku getraunirnar – Svenska Spel og þar kostar hver röð 1 sænska krónu. Íslenskar getraunir verða að selja röðina á svipuðu verði og Svíarnir þar sem vinningsupphæðir eru reiknaðar í sænskum krónum. Gengi sænsku krónunnar hefur lækkað undanfarið gagnvart íslenskri krónu og er því ráðist í þessa lækkun.

“Vel verður fylgst með þróun gengis krónunnar,” að því er segir í fréttatilkynningunni, “og ef fram fer sem horfir verður skammt að bíða næstu lækkunar.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert