Hildur tekur sæti Ólafar

Hildur Sverrisdóttir.
Hildur Sverrisdóttir.

Ólöf Nor­dal, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, mun ekki gegna þingmennsku á næstunni en hún er nýútskrifuð af Landspítalanum. Hún dvaldi þar í rúmlega mánuð með lungnabólgu og sýkingu en Ólöf hefur glímt við krabbamein.

Sæti Ólafar tekur fyrsti varamaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Hildur Sverrisdóttir. Ólöf sendi starfandi þingforseta, Steingrími J. Sigfússyni, bréf þess efnis sem hann las við upphaf framhalds þingsetningarfundar nú síðdegis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert