Áfram í gæsluvarðhaldi eftir misþyrmingar

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald þangað til dómur er fallinn í máli hans, en ekki lengur en til 23. desember. Var maðurinn ákærður í mars á þessu ári fyrir frelsissviptingu, líkamsárás, hótanir, kyn­ferðis­brot og stór­felld­ar ærumeiðing­ar gegn sam­býl­is­konu sinni. Þá var hann talinn hafa reynt að hafa áhrif á framburð konunnar.

Frétt mbl.is: Grunaður um að alvarleg brot gegn sambýliskonu sinni

Frétt mbl.is: Misþyrmdi sambýliskonu sinni

Frétt mbl.is: Áfram gæsluvarðhald vegna misþyrmingar

Maðurinn var í júní dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi, en málinu var svo áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins og var það flutt í Hæstarétti 28. nóvember og er nú beðið dóms. Brot þau sem maðurinn hefur nú verið sakfelldur fyrir geta varðað allt að 16 ára fangelsi.

Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi svipt sam­býl­is­konu sína frelsi í fjór­ar klukku­stund­ir á heim­ili þeirra og ít­rekað veist að henni, slegið hana hnefa­högg­um og rifið í hár henn­ar. Þá hafi hann skipað kon­unni að setj­ast á stól en svo sparkað hon­um und­an henni svo hún féll á gólfið.

Meðan á þessu stóð er maður­inn sagður hafa hótað kon­unni ít­rekað líf­láti og meinað út­göngu af heim­il­inu.

Þá á maður­inn að hafa tekið mynd­ir af kyn­fær­um henn­ar og áreitt hana kyn­ferðis­lega auk þess sem hann þvingaði hana til munn­maka og endaþarms­maka. Hlaut kon­an af þessu mar á höfði og víðar auk þess sem jaxl brotnaði.

Þá kom fram við rann­sókn máls­ins að maður­inn og faðir hans reyndu ít­rekað að hafa áhrif á framb­urð kon­unn­ar með því að setja sig í sam­band við hana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert