Hellti yfir sig bensíni og kveikti í

mbl.is

Lögregla var kölluð að húsnæði Útlendingastofnunar í Víðinesi á þriðja tímanum í dag samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en þar hafði hælisleitandi hellt yfir sig bensíni og kveikt í. Maðurinn, sem er illa brunninn, var fluttur á sjúkrahús.

Ekki er vitað frekar um líðan hans á þessari stundu að því er segir í tilkynningunni. Áfallateymi Útlendingastofnunar var kallað út til að hlúa að íbúum og starfsfólki í Víðinesi.

Þetta var annað útkallið sem lögreglan sinnti í Víðinesi í dag segir enn fremur. Í hádeginu hafi annar hælisleitandi hótað að skaða sjálfan sig. Ekki hafi þó komið til þess og var maðurinn fluttur á lögreglustöð á meðan unnið er í máli hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert