Pólitískt mikilvægi NATO hefur síst minnkað

Ráðherrarnir funduðu með starfssystkinum sínum frá Finnlandi og Svíþjóð, ásamt …
Ráðherrarnir funduðu með starfssystkinum sínum frá Finnlandi og Svíþjóð, ásamt utanríkismálastjóra ESB, um aukna samvinnu við Evrópusambandið um netöryggismál, öryggismál á hafi og aðgerðir til að koma á stöðugleika og friði. AFP

Aukin samvinna Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins, þróun öryggismála í Evrópu og aðgerðir til að stuðla að friði og stöðugleika voru meðal umræðuefna á fundi utanríkisráðherra ríkja Atltantshafsbandalagsins sem haldinn var í Brussel í gær og dag. Lilja Alfreðsdóttir, starfandi utanríkisráðherra, sat fundinn fyrir hönd Íslands. 

Fram kemur í tilkynningu sem utanríkisráðuneytið hefur sent frá sér, að ráðherrarnir hafi fundað með starfssystkinum sínum frá Finnlandi og Svíþjóð, ásamt utanríkismálastjóra ESB, um aukna samvinnu við Evrópusambandið um netöryggismál, öryggismál á hafi og aðgerðir til að koma á stöðugleika og friði. Í kjölfarið hafi verið gefin út samstarfsyfirlýsing og aðgerðaráætlun vegna aukins samstarfs við ESB. Þá var fundað um þróun mála á Balkanskaga og stuðning við ríki á austur- og suðurjaðri bandalagsins, ekki síst í Miðausturlöndum og Norður-Afríku. Þá voru samskiptin við Rússland rædd og mikilvægi þess að draga úr spennu.
 
Lilja segir mikla samstöðu hafa einkennt fundinn. „Pólitískt mikilvægi Atlantshafsbandalagsins hefur síst minnkað. Aðildarríkin hafa bæði þétt og víkkað sitt samstarf á sama tíma og nokkur óvissa ríkir innan Evrópusambandsins. Atlantshafsbandalagið rammar inn samstarf Evrópuþjóðanna og Bandaríkjanna og brúin yfir Atlantshafið er sterk," er haft eftir Lilju í tilkynningu.

Lilja Alfreðsdóttir, starfandi utanríkisráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, starfandi utanríkisráðherra. mbl.is/RAX

  
Bent er á, að fundurinn hafi verið sá síðasti áður en nýr forseti Bandaríkjanna tekur við embætti og síðasti fundur John Kerry sem utanríkisráðherra. Í kveðjuræðu sinni ræddi Kerry um mikilvægi samstarfsins og styrk Atlantshafsbandalagsins.  Lilja tekur í sama streng.

„Atlantshafsbandalagið er sterkt og hefur í gegnum tíðina staðið af sér pólitíska sviptivinda. Aðildarríkin 28 eru ólík um margt, en þau standa sameinuð gegn utanaðkomandi öryggisógnum og styðja varnir hvers annars. Öryggissamvinnan á sér djúpar rætur í stjórnkerfum aðildarlandanna og fyrirséðar breytingar í hópi leiðtoga áhrifamikilla aðildarþjóða munu ekki breyta eðli NATO samstarfsins," segir Lilja ennfremur. 
 
Í morgun var fundað með utanríkisráðherra Úkraínu þar sem farið var yfir stöðu mála í Úkraínu, umbótastarf þarlendra stjórnvalda og áframhaldandi stuðning Atlantshafsbandalagsins. Að endingu funduðu þátttökuríki í stuðningsaðgerðum alþjóðaliðsins í Afganistan með utanríkisráðherra landsins og fulltrúum Sameinuðu þjóðanna. Gert er ráð fyrir að stuðningur alþjóðaliðsins haldi áfram út næsta ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert